Björgunarskipið Unnur leysir Vörð II af hólmi

Nýtt björgunarskip Landsbjargar sigldi inn í Patrekshöfn í gær. Það hlaut nafnið Unnur, dregið af slysavarnadeildinni Unni sem sinnir fjölbreyttu fjáröflunar- og félagsstarfi á Patreksfirði.Fjölmenni tók á móti skipinu þegar það lagðist að bryggju í Patrekshöfn upp úr hádegi. Unnur leysir gamla björgunarskipið Vörð II af hólmi sem hefur þjónað sínu hlutverki í 20 ár. Nýja skipið er betur búið að öllu leyti.„Það er rosalegur munur á tækninni. Það er hraðskreiðara og betur búið,“ segir Arna Margrét Arnardóttir, svæðisstjóri hjá Landsbjörg.Nýtt björgunarskip skipti miklu máli fyrir samfélagið, og ekki síst sjómenn.„Það skiptir bara gríðarlega miklu máli að vera kominn inn í nútímann með nýju skipi. Hefur gríðarleg áhrif í sjóbjörgun og líka landi,“ segir Arna Margrét.
Björgunarskipið Unnur leysir Vörð II af hólmi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd