Fleiri þúsund íbúar hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóða

Um 4.900 hafast við í neyðarskýlum vegna flóða í Bangkok á Taílandi. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í borginni vegna mikillar úrkomu og flóða undanfarið en um 52.000 heimili hafa orðið fyrir tjóni vegna flóðanna.Hillur sumra verslana hafa tæmst því íbúar hafa verslað nauðsynjavöru í stórum stíl. Vatnsyfirborð í skurðum er enn mjög hátt en yfirvöld vinna að því að losa vatn úr þeim.Einn íbúi sagði í samtali við fréttaveitu AFP að hús sitt hefði verið undir vatni í um 30 klukkustundir. Íbúar borgarinnar eru ýmsu vanir á þessum árstíma þegar úrkoma nær hámarki en margir segja að úrkoman nú sé mun meiri en fyrri ár.Mörgum eru flóðin árið 2011 enn í fersku minni, en yfir 500 fórust og yfir milljón heimila eyðilögðust í flóðunum.Yfir 10.000 hermenn í taílenska hernum hafa verið kallaðir út
Fleiri þúsund íbúar hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd