260 bjargað úti fyrir ströndum Máritaníu

Google mapStrandgæsla Máritaníu bjargaði 250 úti fyrir ströndum höfuðborgarinnar Nouakchott í dag, þar af voru 61 kona og 17 börn um borð í bátunum.Fólkið fór frá Banjul í Gambíu fyrir viku og ætlaði að reyna að komast yfir Atlantshafið til Kanaríeyja. Bátarnir voru illa útbúnir og flótta- og förufólkið var matarlaust og í vandræðum með bensín og leiðsögutæki um borð í bátunum.Flestir um borð voru frá Senegal, Gambíu og Gíneu en einnig frá fleiri löndum í vestur Afríku. Margir eru að flýja fátækt og erfitt efnahagsástand í þessum löndum og sjá því ekki annan kost en að fara þessa leið með ólöglegum hætti.
260 bjargað úti fyrir ströndum Máritaníu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd