Loka hefur þurft um 20% af öllu húsnæðis endurhæfingarmiðstöðvarinnar á Reykjalundi.Hún var stofnuð af SÍBS í landssöfnun árið 1945 þegar berklar voru útbreiddur sjúkdómur og margir þörfnuðust endurhæfingar. Síðan þá hafa kröfur til heilbrigðisstofnana breyst mikið. Margar byggingar Reykjalundar eru komnar til ára sinna og þarfnast nauðsynlegs viðhalds.„Það er fjölmargt og það er nánast allt sem þarf að laga hérna,“ segir Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Reykjalundar.Endurnýja þarf þak á mörgum byggingum á svæðinu og til skoðunar er að rífa einhverjar byggingar þar sem mögulega sé ekki hægt að bjarga þeim. Þá þarf að koma fyrir dreni undir einhverjum byggingum þar sem slíku var ekki komið fyrir þegar húsin voru byggð fyrir meira en 80 árum.Heildarviðhaldsþörf á endurhæfingarmiðstöðinni