Til stendur að reisa um 600 íbúðir auk hjúkrunarheimilis fyrir eldri borgara næst Köllunarklettsvegi við Laugarnes í Reykjavík. Gera þarf breytingu á aðalskipulagi áður en framkvæmdir geta hafist. Verði Sundabraut í göngum kæmi umferðin upp við hliðina á nýju byggðinni.Tillögur að uppbyggingunni voru kynntar á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í liðinni viku.Við Köllunarklettsveg, þar sem nú er iðnaðar- og athafnasvæði, stendur til að reisa nýja byggð. Gert er ráð fyrir um 600 íbúðum, auk hjúkrunarheimilis, leikskóla, veitingastaða, hótels, verslunar og þjónustu.Innan hverfisins er ekki gert ráð fyrir bílaumferð, heldur verða bílastæði neðanjarðar og bílastæðahús yst í byggðinni, næst byggingunni þar sem Góði hirðirinn er til húsa.Þar nálægt er gert ráð fyrir að gangamunni Sundabrautar kom