Óstýrilátur farþegi handtekinn eftir skemmdir um borð í vél Icelandair

Óstýrilátur farþegi olli skemmdum á innréttingu Icelandair-vélar í flugi frá Keflavík til Amsterdam í dag. Lögregla tók á móti farþeganum við lendingu og var hann handtekinn.Þetta staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við fréttastofu. Hún segir að samkvæmt verklagi hafi verið haft samband við lögreglu vegna hegðunar farþegans.Skemmdir urðu á innréttingu flugvélarinnar. Ásdís getur ekki veitt nánari upplýsingar um umfang tjónsins.Málið er nú til skoðunar hjá yfirvöldum í Hollandi. Ásdís getur ekki staðfest þjóðerni farþegans. Ekki liggur fyrir hvort Icelandair leggi fram kæru vegna málsins.Flugferðin heim varð tæplega klukkutíma á eftir áætlun frá Amsterdam. Flugvélin lenti þó aðeins um hálftíma síðar en áætlað var á Keflavíkurflugvelli.
Óstýrilátur farþegi handtekinn eftir skemmdir um borð í vél Icelandair

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd