Írar sóttu fyrsta sigur sinn í Þjóðadeild karla í fótbolta í kvöld þegar þeir unnu Ísrael 3-0 í Debrecen í Ungverjalandi.Írar byrjuðu leikinn af krafti og Jayson Molumby átti fyrstu marktilraun þeirra þegar langskot hans fór rétt yfir markið. Skömmu síðar komst Troy Parrott í ágæta stöðu en Nikita Stoinov náði að koma í veg fyrir skot hans.Parrott kom Írum yfir á 14. mínútu eftir sendingu frá James Abankwah. Aðeins tveimur mínútum síðar var staðan orðin 2-0 fyrir Írum eftir að Jack Moylan renndi boltanum inn fyrir vörn Ísraels á Adam Idah sem lyfti honum yfir Peretz, markmann Ísraela, og í netið.Moylan skoraði þriðja markið á 25. mínútu og náðu Írar því að skora þrjú mörk á aðeins tólf mínútum. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum. ENGIN HANDABÖND FYRIR LEIK Leikmenn Írlands og Ísrael