„Fræðsla og forvarnir lykilatriði til að þetta frumvarp beri nokkurn árangur“

Sérfræðingur Stafrænnar velferðar fagnar frumvarpi mennta- og barnamálaráðherra um aðgang barna að samfélagsmiðlum. Foreldrar séu oft undir miklum þrýstingi að hleypa börnum sínum inn á samfélagsmiðla en lagasetning gæti breytt félagslegum viðmiðum.„Þessi lög eru svona eins og útivistartíminn í rauninni og eru á ábyrgð foreldra. Það verða engin viðurlög og það er engin refsing eða eftirlit með þessu. En þetta gefur foreldrum svona sterk samfélagsleg viðmið,“ segir Anna Laufey Stefánsdóttir, sérfræðingur hjá Stafrænni velferð. FORVARNARMÓDELIÐ ÞAÐ MIKILVÆGASTA Í FRUMVARPINU Frumvarp Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra var kynnt í samráðsgátt fyrir helgi og felur í sér að foreldrar sjái til þess að börn yngri en 15 ára hafi ekki sjálfstæðan aðgang að samfélagsmiðlum. Aldurstakmarkið
„Fræðsla og forvarnir lykilatriði til að þetta frumvarp beri nokkurn árangur“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd