Fjörutíu ungmenni á aldrinum 14 til 25 komu saman á Hótel Borgarnesi um helgina, þar sem Ungmennaþing Vesturlands fór fram. Aðgengi að frístunda- og íþróttastarfi, samgöngum og heilbrigðisþjónustu var þeim ofarlega í huga.Þinginu lauk með því að ungmennin lögðu fram ályktanir sem sendar verða bæði á Alþingi og sveitarstjórnir á Vesturlandi. Þær byggja á umræðum og vinnu ungmennanna á þinginu.Meðal tillagnanna er að starfrækt verði ungmennahús eða sambærileg aðstaða fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára í öllum sveitarfélögum á svæðinu. Þau vilja líka fjölga ferðum almenningssamgangna milli sveitarfélaga, ekki síst á Snæfellsnesi, þar sem strætó gengur ekki um helgar.Í ályktuninni segir: „Tryggja þarf að strætó gangi einnig um helgar og fram eftir kvöldi, svo ungt fólk komist á milli sve