Síðustu daga hefur sést til fjölda flækingsfugla á Íslandi, meðal annars til kúhegra og bognefs í Vestmannaeyjum. Sá síðarnefndi var áður fyrr mjög sjaldgæfur en hefur sést oftar síðastliðin ár.Fyrstu bognefirnir sáust á Íslandi árið 1824 en þeirra varð ekki vart aftur fyrr en yfir einni og hálfri öld síðar. Í heildina hefur sést til um fjörutíu bognefja á Íslandi. Síðastliðið haust var metár þegar 20 fuglar sáust hér.Yann Kolbeinsson, líffræðingur hjá Náttúrustofu Norðausturlands, segir að suðrænum fuglategundum hafi fjölgað í norðanverðri Evrópu samhliða hlýnandi loftslagi.Þessa þróun má til dæmis merkja á fleiri flækingum, svo sem bognefjum, kúhegrum og bjarthegrum.Það sem skýrir aukinn fjölda flækinga síðastliðna daga segir Yann vera lægðagang.„Það kom ansi kröftug lægð sunnan úr hafi