Hafnarfjarðarbær breytti deiliskipulagi sínu í maí til þess að koma 30.000 fermetra húsnæði Tækniskólans fyrir í Flensborgarhöfn.Fasteignaeigendur í nágrenninu kærðu breytinguna til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Nú hefur nefndin komist að niðurstöðu og hafnar hún kröfu kærenda um að ógilda breytt skipulag.Deiliskipulagið stendur því óhaggað þrátt fyrir að ljóst sé að Tækniskólinn rísi ekki í Hafnarfirði úr þessu, eins og fjallað hefur verið um í fréttum RÚV. Úrskurðurinn byggist á að nýtt deiliskipulag samræmist aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar og samráð hafi verið haft við fasteignaeigendur. ÓLJÓST HVAÐ VERÐUR Til stóð að rífa ríflega 6500 fermetra af húsnæði til þess að koma Tækniskólanum fyrir.„Við lásum bara um það í blöðunum að það var búið að teikna yfir húsið okkar