Alvarlegt atvik kom upp í nótt nálægt herstöð breska flughersins í suðvesturhluta Englands. Sprengjusérfræðingar voru kallaðir til og hafa fimm verið handteknir vegna gruns um undirbúning hryðjuverka og brot á lögum um sprengiefni. Donald Trump, Bandaríkjaforseti segir mennina hafa verið til rannsóknar í lengri tíma. ÞRJÚ „GRUNSAMLEG FARARTÆKI“ Breska lögreglan greindi frá því á blaðamannafundi í dag að ábending hefði borist rétt eftir miðnætti um þrjú grunsamleg farartæki sem stefndu í átt að RAF Fairford – herstöð breska flughersins í suðvesturhluta Englands.Lögregla var með mikinn viðbúnað og voru íbúar áttatíu og fimm heimila í bænum Whelford, í nágrenni við herstöðina, fluttir á brott.Stórt svæði var girt af og hryðjuverkadeild lögreglu og sprengjusérfræðingar hersins kallaðir til.