Drengur sem kom í heiminn 15. september er fyrsta barnið sem fæðist á nyrstu eyju Orkneyjaklasans, Norður-Ronaldsay, í meira en 30 ár, en síðast fæddist barn þar árið 1992.Drengurinn fékk nafnið Duncan Wilder Thorstein Traill Suarez Ford og fögnuðu eyjaskeggjar komu hans með því að fá sér viskítár sem nýbakaðir foreldrarnir dreifðu til nágrannanna í tilefni dagsins.Foreldrar Duncans, Jorge Suarez og Alice Traill Ford, búa til skiptis á Orkneyjum og í Kosta Ríka. Þeim fannst Orkneyjar þó rétti staðurinn til að fæða barnið og höfðu þau því samband við bresku heilbrigðisþjónustuna (NHS) til að kanna hvort það væri gerlegt, sem það var. FÆDDIST Á HEIMILI FORFEÐRANNA Norður-Ronaldsay er aðeins aðgengileg með 20 mínútna flugferð eða tæpra þriggja tíma langri ferjuferð frá bænum Kirkwall. Eyja