Tvö fíkniefnamál og ein líkamsárás á Laufskálaréttarballi

Réttað var í Laufskálarétt í Hjaltadal í gær eins og venja er síðustu helgina í september en um er að ræða eina fjölsóttustu stóðrétt landsins. Í kjölfarið er hið árlega Laufskálaréttarball, haldið í reiðhöllinni á Sauðárkróki.Pétur Björnsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Norðurlandi vestra, segir í samtali við fréttastofu að upp hafi komið tvö minniháttar fíkniefnamál og tilkynnt um eina líkamsárás. Þá hafi einn verið tekinn fyrir ölvunarakstur áður en ballið hófst. Að öðru leyti hafi gengið vel. Færri hafi verið á ballinu en undanfarin ár.Þá segir hann jákvætt að engin mál tengd börnum hafi komið inn á borð lögreglu en lögreglan fór í mikið átak á samfélagsmiðlum í aðdraganda ballsins. Undanfarin ár hafi borið á því að börn undir lögaldri hafi verið ölvuð á skemmtuninni en ekkert
Tvö fíkniefnamál og ein líkamsárás á Laufskálaréttarballi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd