Fólki sem þiggur fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ hefur fækkað um rúmlega 80% frá því árið 2023.Í mars 2023 fengu 378 einstaklingar aðstoð en í júlí á þessu ári voru þeir 70 talsins. Fjallað var fyrst um málið í Víkurfréttum.Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að rekja megi fækkunina til fjöldamargra virkjunarúrræða og greiningar velferðarsviðs Reykjanesbæjar.„Sem að kafaði bara ofan í þetta mengi og kom með lausnir á þessu með því að vera í góðum samskiptum við þá sem eru með bæði virkniúrræði,“ segir Vilhjálmur sem tekur fram að fyrst og fremst snúist lausnir um að koma fólki aftur í virkni. Samvinna hafi verið á milli velferðarsviðsins og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, MMS, Vinnumálastofnunar og fleiri stofnana.„Þetta var svona markviss greiningarvinna og virkniúrræðisvi