Sprengjusérfræðingar kemba svæði í kringum breska herstöð

Lögreglan í Bretlandi hefur flutt á brott fjölda íbúa í bænum Whelford, nærri Fairford-herstöð breska flughersins í Gloucestershire-sýslu í suðvesturhluta Englands. Nokkrir menn hafa verið handteknir grunaðir um brot á lögum um sprengiefni.Búið er að girða af stórt svæði í kringum herstöðina og hafa sprengjusérfræðingar verið kallaðir út. Lögregla segist hafa náð tökum á aðstæðum og hefur boðað til blaðamannafundar síðar í dag.Í færslu á samfélagsmiðlinum X segir innanríkisráðherra, Shabana Mahmood, alla tiltæka viðbragðsaðila á svæðinu. Búið sé að ná tökum á aðstæðum.„Á meðan á rannsókn stendur tel ég óviðeigandi að tjá mig frekar,“ skrifar Mahmood.Í byrjun mars veitti Keir Starmer, þáverandi forsætisráðherra, bandaríska flughernum leyfi til að nýta herstöðina í varnaraðgerðum gegn Íran.
Sprengjusérfræðingar kemba svæði í kringum breska herstöð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd