Ætla ekki að hvika frá skilyrðum um opnun Hormússunds

Írönsk stjórnvöld standa föst á skilyrðum sínum fyrir því að opna Hormússund fyrir skipaflutningum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hafnaði skilyrðunum í gær, en þau höfðu glætt vonir um frið í stríðinu í Mið-Austurlöndum. Sundið er fyrir löngu orðið að aðalbitbeini stríðsins, sem geisað hefur í sjö mánuði. Það er ein mikilvægasta lífæð alþjóðaviðskipta, ekki síst með olíu og gas úr þessum heimshluta. Tillaga Írana kvað á um vopnahlé í öllum átökum í Mið-Austurlöndum, þar á meðal í Líbanon, að því er Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans segir. Þá var lagt til að vopnahléssamningur sem virtur var að vettugi fyrir nokkrum misserum yrði endurvakinn. Sá samningur kvað meðal annars á um að losa skyldi um frystar íranskar eignir og að viðskiptabann með íranska olíu yrði dregið til baka. „Skily
Ætla ekki að hvika frá skilyrðum um opnun Hormússunds

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd