Deilur hafa staðið um stækkun lóðar AtNorth til vesturs, við rætur Hlíðarfjalls á Akureyri. Margar athugasemdir bárust um deiliskipulagsbreytinguna og er unnið að því að svara þeim.„Við erum bara að vanda okkur og það standa enn þá út af nokkur mál sem við viljum klára. Við erum mjög jákvæð fyrir þessari uppbyggingu en við eigum eftir að klára samkomulag við bílaklúbbinn, Létti og við eigum eftir að fá almennileg viðbrögð frá Norðurorku, Rarik og Landsneti um lagnaleiðir og fleira. Við erum að vinna þétt að þessu og vonandi fer þetta bara í gegn,“ segir Sunna Hlín Jóhannesdóttir, formaður skipulagsráðs á Akureyri, aðspurð hvers vegna málinu hefði verið frestað á síðasta fundi. AtNorth stefnir að uppbyggingu á Akureyri fyrir 30 milljarða króna. GREIÐA FYRIR TJALDSVÆÐI BÍLAKLÚBBS AKUREYRAR