Ökumenn verða að vera tímanlega til að vera hleypt yfir

Hringveginum við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna malbikunarframkvæmda. Lokunin varir til klukkan 7 í fyrramálið.Fólki verður þó hleypt í gegnum framkvæmdasvæðið einu sinni, klukkan 22.„Menn þurfa að vera komnir þarna fyrir tíu og tilbúnir í það að keyra yfir klukkan tíu. Það verður hleypt yfir fyrst í aðra áttina og svo í hina,“ segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar.„Það eru kannski fyrst og fremst ferðamennirnir sem eru þarna á ferð. Við vonum og óskum eiginlega eftir því að ferðaþjónustuaðilar séu duglegir við að koma skilaboðum til ferðamanna.“Hann segir erfitt að gera ráð fyrir því hvort langar raðir myndist. Alla jafna er talsverð umferð um svæðið.Framkvæmdirnar snúa að malbikun fjögurra kílómetra langs kafla v
Ökumenn verða að vera tímanlega til að vera hleypt yfir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd