Fullt af hálfvitum á vegunum

Gróa ólst upp á Suðurnesjum og var snemma mjög tónhneigð, lagði stund á tónlistarnám og var á fermingaraldri þegar farin að spila undir hjá kórum og fara í tónleikaferðalög. Starf organistans var lengi hennar aðalstarf, bæði hér innanlands og í Noregi þar sem hún bjó í nokkur ár. Síðar, þegar hún var atvinnulaus um hríð, skellti hún sér í meiraprófið og fór að keyra rútur. Í dag stendur hún á sjötugu en segist hvergi nærri hætt og keyrir ferðamenn um allt land. Hún dregur línuna við aksturinn og segist ekki vilja leiðsegja fólki meðfram honum því aðstæður á vegum Íslands séu það krefjandi að ekki veiti af að hafa alla athyglina við aksturinn. Meðfram öllu þessu ól hún upp fimm börn, lengst af einstæð. Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Gróu og hlusta má í spilaranum hér að ofan.
Fullt af hálfvitum á vegunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd