Yfir þúsund hestamenn í Laufskálarétt

Meira en þúsund hestamenn komu saman í gær þegar réttað var í Laufskálarétt. Venju samkvæmt gerðu margir sér glaðan dag.„Það eru líklega fleiri hundruð útlendinga hér sem koma gagngert til að upplifa þessa stemningu,“ sagði Rósa María Vésteinsdóttir frá Narfastöðum í Skagafirði.Laufskálarétt er ein vinsælasta stóðrétt landsins og ár hvert safnast þar saman mikill fjöldi hestamanna. Hrossin voru rekin yfir ásinn til réttar þar sem bændur flokkuðu þau og komu í dilka. Að loknum réttum var haldið heim á leið með stóðið.„Ég er nú fædd og uppalin hérna. Ætli ég sé ekki búin að fara yfir fimmtíu sinnum,“ segir Rósa.
Yfir þúsund hestamenn í Laufskálarétt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd