Ljósin slokkna á Kúbu

Algjört rafmagnsleysi hefur plagað íbúa Kúbu reglulega undanfarin misseri. Neyðarástand hefur verið í orkumálum allt þetta ár vegna viðskiptaþvingana Bandaríkjanna og olíubirgðir eru af skornum skammti. Eldsneytisskortur og rafmagnsleysi bætast ofan á snarpar verðhækkanir og versnandi ástand í heilbrigðismálum á eyjunni.„Mest allt rafmagn er unnið úr gömlu sovésku olíuveri sem er mjög sjaldan í gangi núna. Það verður svo heitt þarna og fólk getur þá ekki notað loftkælingu eða viftur og lífið því næsta óbærilegt. Lífið varð óbærilegt í sumar en Kúbverjar eru vanir því að lifa við óbærilegar aðstæður og hafa gert það áður. Þeir komust í gegnum sumarið. Nú er að koma vetur og aðeins svalara, ástandið verður því örlítið lífvænlegra, matvæli endast lengur og fólk á auðveldara með að sofa og ann
Ljósin slokkna á Kúbu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd