Svalt og rigning fyrir norðaustan

Kyrrstæð lægð við norðausturströndina beinir svalri norðanátt innyfir norðvestanvert landið með talsverðri rigningu og jafnvelslyddu, einkum á Ströndum og norðanverðum Vestfjörðum. Þar eru skriðuviðvaranir í gildi fram á mánudagsmorgun.Þetta er meðal þess sem kemur fram í veðurpistli frá Veðurstofu Íslands.Í öðrum landshlutum fremur hæg breytileg átt og mildara veður. Væta með köflum suðaustan- og austanlands en annars úrkomulítið.Hiti á bilinu 3–11 stig, svalast á Vestfjörðum.Það er útlit fyrir svipað veður fram á morgundaginn, en þá styttir væntanlegaupp eystra. Á þriðjudag og miðvikudag er spáð stífri austlægri áttog verður væntanlega býsna vætusamt á stærstum hluta landsins.
Svalt og rigning fyrir norðaustan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd