Ostaunnendur víða um heim þekkja ugglaust Comté ostinn, sem líka er þekktur sem Gruyére de Comté. Framleiðslan byggir á þúsund ára gamalli aðferð, sem upphaflega varð til í Júra-fjöllunum í Austur-Frakklandi. Osturinn er harður og gerður úr ógerilsneyddri mjólk. Samkvæmt aldagamalli hefð er Comté formaður hringlaga, á bilinu 40-60 sentimetrar í þvermál og 9-13 sentimetrar á þykkt. Slíkur hlemmur vegur...