Slydda eða snjókoma til fjalla

Í dag verður norðan 10-15 m/s um landið norðvestanvert með rigningu á láglendi en slyddu eða snjókomu til fjalla. Búast má við talsverðri úrkomu á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum. Annars verður vindur mun hægri og úrkomulítið, en væta með köflum suðaustan- og austanlands. Hitinn verður á bilinu 3 til 11 stig.
Slydda eða snjókoma til fjalla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd