Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt eftir að afskipti voru höfð af talsverðum fjölda ungmenna undir aldri sem voru inni á staðnum, segir í dagbók lögreglu. Að auki voru tveir handteknir og vistaðir í fangaklefa, hvor vegna sinnar líkamsárásarinnar, annar í miðborg Reykjavíkur og hinn í hverfi 221 í Hafnarfirði.