Hvenær kom fyrsta Rómafjölskyldan til Íslands? Árið 1911 samkvæmt rannsóknum Guðmundar Hálfdánarsonar sagnfræðings. Fjölskyldan er kölluð Demeter-fjölskyldan.Guðmundur segir að talsverðar heimildir séu til um þessa fjölskyldu, meðal annars frá Danmörku. Höfuð fjölskyldunnar var fjölskyldumóðirin Rebekka Demeter. „Það sem við getum fundið eru fyrst og fremst blaðaheimildir. Það eru fréttir um komu þessarar fjölskyldu. Hún kemur hér í byrjun haustsins 1911. Við getum fylgt ferðalagi fjölskyldunnar um landið, það eru tekin viðtöl við þau og þeim er sýndur ákveðinn áhugi,“ segir Guðmundur.Þessi Rómafjölskylda reyndi að villa á sér heimildir á Íslandi. Vegna þeirra voru fordómar ríkjandi gagnvart Rómafólki. Fjölskyldan sagðist vera Lappar.Guðmundur Hálfdánarson hefur stundað rannsóknir á sögu R