Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað í miðborginni í gær eða nótt eftir að höfð voru afskipti af talsverðum fjölda ungmenna undir aldri sem voru inni á staðnum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti og var málið afgreitt með aðstoð barnaverndar.Einstaklingur var handtekinn í miðborginni vegna líkamsárásar, vopnalagabrots og vörslu fíkniefna og var hann síðan vistaður í fangaklefa. Annar einstaklingur var handtekinn í Hafnarfirði vegna líkamsárásar og var sá einnig vistaður í fangaklefa.Lögregla hafði einnig afskipti af einstaklingi í Kópavogi og þá kom í ljós að maðurinn var í ólöglegri dvöl hér á landi. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa.Óskað var eftir aðstoð lögreglu í Kópavogi vegna ungmennis s