Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, segir að Evrópa standi í veginum fyrir lausn á innrásinni í Úkraínu.Í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York sagði Lavrov að Evrópa væri að gera allt til að hindra friðarviðræður en Bandaríkjastjórn hefði hins vegar áhuga á þeim.Hann sagði að markmiðum hinnar sértæku hernaðaraðgerðar, líkt og Rússar kalla innrásina, verði náð. Ógninni gagnvart öryggi Rússlands verði eytt og lífið verði friðsamt eftir það. Hann bætti við að þetta eigi eftir að raungerast, óháð aðstæðum. UTANRÍKISRÁÐHERRAR RÚSSLANDS OG ÞÝSKALANDS FUNDUÐU Í FYRSTA SINN SÍÐAN INNRÁSIN HÓFST Fyrir ræðu sína átti Lavrov fund með utanríkisráðherra Þýskalands, Johann Wadephul, en það er í fyrsta sinn síðan innrásin hófst sem utanríkisráðherrar landanna hittast.Wade