17 fórust í flugslysi

Google map17 fórust í flugslysi í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í dag. 13 farþegar voru í vélinni og fjórir í áhöfn. Meðal látinna eru tveir háttsettir hershöfðingjar, Joseph Mutombo yfirmaður herréttarins og Lucien-Rene Likulia endurskoðandi hersins.Flugvélin hrapaði nærri Kenge, um 200 kílómetra frá höfuðborginni Kinshasa. Flugsamgöngur gegna mikilvægu hlutverki í landinu þar sem vegakerfi er oft í misjöfnu ástandi. Það er þó ákveðin hætta sem fylgir flugferðunum, því flugvellir og leiðsögutæki eru oft í lélegu ástandi.Forseti Kongó, Felix Tshisekedi, hefur fyrirskipað rannsókn á flugslysinu.
17 fórust í flugslysi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd