Óraníureglunni verður heimilt að ganga um Garvaghy Road í Portadown á Norður-Írlandi í fyrramálið, í fyrsta sinn í 28 ár. Áfrýjunardómstóll í Belfast felldi seint á laugardagskvöld úr gildi tímabundið bann sem hafði verið lagt við göngunni aðeins nokkrum klukkustundum áður.