Það urðu fagnaðarfundir í húsakynnum Morgunblaðsins í Hádegismóum á dögunum; Böðvar Bjarki Þorsteinsson og Georg Magnússon heilsuðust með virktum og féllust í faðma. Lái þeim hver sem vill, þeir höfðu ekki sést í heil 35 ár, eða síðan þeir komu heim til Íslands eftir mikla ævintýra- og háskaför með Jökulfellinu niður í Persaflóa í byrjun árs 1991. Skipið var hlaðið vopnum enda stríð í þann mund að brjótast út á svæðinu.