Þorgerður Katrin Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, sagði það heigulskap að vilja ekki setjast niður og semja um langvarandi og réttlátan frið á Gaza, og neita bágstöddum íbúum þar um aðstoð, í ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag.Hún beindi orðum sínum að Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og sneri þar með orðum hans gegn honum sjálfum. Fyrir helgi lét hann þau orð falla að þeir væru siðferðislegir heiglar sem kusu að ganga út úr þingsalnum á meðan hann ávarpaði allsherjarþingið.Þorgerður Katrín ræddi málin í beinni útsendingu í kvöldfréttum sjónvarps.„Við finnum það alveg hér og í aðdraganda þingsins að það hriktir í stoðum alþjóðakerfisins. Og þess vegna er það þeim mun betra að finna það að litlar og meðalstórar þjóðir, og líka stærri þjóðirnar, að það er