Roelf Meyer, nýr sendiherra Suður-Afríku í Bandaríkjunum, segir ekkert „þjóðarmorð á hvítum“ eiga sér stað í heimalandi sínu og að Donald Trump forseti hafi verið blekktur. Hann er sjálfur Búi með afríkönsku að móðurmáli og var lykilmaður í samningaviðræðunum um að binda enda á aðskilnaðarstefnuna.