MH-ingar fagna sextugsafmælinu

Menntaskólinn við Hamrahlíð á 60 ára afmæli um þessar mundir og af því tilefni var haldið upp á afmæli skólans með veglegri hátíðardagskrá í allan dag. Dagskráin endaði með stórtónleikunum Hamrahljóð á Miklagarði, sem standa enn yfir. Þar koma fram tónlistarmenn úr hópi fyrrverandi og núverandi MH-inga.„Það er búið að vera svo gaman í dag að hitta alla MH-ingana sem eru að halda upp á þessi tímamót og hitta gamla vini. Þetta er búinn að vera frábær dagur,“ segir Helga Jóhannsdóttir, rektor MH og stúdent úr MH árið 1985.Dagur Ingason, skólastjórnarfulltrúi NFMH, telur að hápunktur kvöldsins verði að sjá Stuðmennina Jakob Frímann og Þórð Árnason stíga á svið ásamt mörgum öðrum góðum gestum í Ofursveit MH, undir stjórn Jökuls Jónssonar, í kvöld.
MH-ingar fagna sextugsafmælinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd