Tískuvikan stendur nú sem hæst í Mílanó, en Vogue World fór fram með pompi og prakt í hinu sögufræga Galleria Vittorio Emanuele II á þriðjudag. Undir hinum frægu glerhvelfingum gallerísins kom tískuheimurinn saman en þar er einnig að finna Michelin-stjörnuveitingastaðinn Cracco, einn þekktasta veitingastað borgarinnar.