Aldrei séð aðra eins ágengni: „Þeir voru að klifra upp á bílinn og berja í rúður“

Yfir hundrað ungmenni fylgdu bandarísku samfélagsmiðlastjörnunni Kai Cenat um miðborg Reykjavíkur í dag en hann er meðal vinsælustu streymara heims með tugi milljóna fylgjenda. Matarleiðsögumaður segist aldrei hafa séð jafn mikinn hamagang.„Ég átti bara að taka á móti stjörnunni en í staðinn voru þarna yfir hundrað manns sem eltu Kai og hann þurfti að hoppa upp í bílinn og við þurftum að bruna í burtu,“ segir Stefán Kári Ottósson, matarleiðsögumaður og leikari.„Hvert sem við fórum held ég að hafi verið svona 18 hjól og kannski 14 vespur í viðbót sem eltu okkur út um alla króka og kima hérna í miðbænum.“ KLUKKUTÍMA MATARTÚR VARÐ AÐ FIMM TIL TÍU MÍNÚTUM Stefán Kári ætlaði að fara með Cenat í um klukkutíma matartúr í beinu streymi á YouTube. Hann segir að planið hafi verið að ganga niður S
Aldrei séð aðra eins ágengni: „Þeir voru að klifra upp á bílinn og berja í rúður“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd