Um 700 þúsund hlýddu á prédikun Leós páfa XIV í miðborg Parísar í dag. Páfi fór fögrum orðum um unga fólkið í kaþólsku kirkjunni og hafði uppi varnaðarorð um tækniframfarir. UNGIR KAÞÓLIKKAR „KIRKJA NÚTÍMANS“ Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar Leó páfa XIV var ekið í páfabílnum á Champs Elysées breiðgötunni, í átt að Sigurboganum. Páfi veifaði til fólksins og nam staðar á nokkrum stöðum og blessaði ungbörn. Páfi endaði svo för sína á torginu Place de la Concorde þar sem haldin var útimessa.Í prédikun sinni fór páfi fögrum orðum um unga fólkið innan kaþólsku kirkjunnar, þann eldmóð, orku og hollustu sem það sýndi og sagði þau kirkju nútímans. Þá hvatti hann kaþólikka til að vera opna með trú sína, bæði í orðum og verki, og fara ekki í felur. Hann fór þó einnig með varnaðarorð, að fólk t