Aðgerðum þar sem meinvörp í lungum voru fjarlægð hefur fjölgað og lífslíkur sjúklinga aukist. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands og Landspítala. Læknanemi sem tók þátt í rannsókninni segir niðurstöður hennar mjög jákvæðar, ekki bara fyrir sjúklinga heldur einnig aðstandendur og þá sem koma að meðferð þeirra. ÁSTÆÐAN EFLAUST FJÖLÞÆTT Vísindamenn við Háskóla Íslands og Landspítala gerðu rannsóknina. Grein um hana birtist á dögunum í vísindatímaritinu Scandinavian Journal of Surgery.Rannsóknin ber heitið „Pulmonary metastasectomy in Iceland: Long-term nationwide trends and outcomes“. Hún náði til 179 sjúklinga sem gengust undir aðgerð þar sem meinvörp í lungum voru fjarlægð á Landspítalanum 2001 til 2021. Til að meta breytingar og þróun var rannsóknartímabil