Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi fékk heiðursverðlaun RIFF í gærkvöld fyrir æviframlag sitt til kvikmyndalistarinnar. „Ferill hans sýnir hversu mikilvægt hlutverk framleiðandans er við að gera djarfar hugmyndir að veruleika og skapa verk sem lifa með áhorfendum áratugum saman,“ segir í tilkynningu frá RIFF.Afhendingin fór fram í tengslum við tvöfalda sýningu á verkum Davids Lynch – upphafsþætti Twin Peaks og nýrri endurgerð Wild at Heart. Sigurjón kom að gerð þeirra.Meðal fyrri handhafa heiðursverðlauna RIFF eru tékkneski leikstjórinn Miloš Forman, þýska leikkonan Hanna Schygulla, kanadíski leikstjórinn David Cronenberg, bandaríska leikkonan Kim Novak og ungverski leikstjórinn Béla Tarr.Í ár eru fjörutíu ár liðin frá því að Sigurjón stofnaði Propaganda Films.„Fyrirtækið átti stór