Tómas snúinn aftur til starfa

Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir er snúinn til baka til starfa á Landspítalanum eftir rúmlega tveggja ára veikindaleyfi. Þetta herma heimildir fréttastofu.Greint var frá því í janúar 2024 að Tómas væri farinn í leyfi frá Landspítalanum. Hann kom aftur til starfa fyrr í þessum mánuði.Íslenska ríkið var dæmt bótaskylt í maí vegna þess sem héraðsdómur mat sem saknæma háttsemi Tómasar í tengslum við ígræðslu plastbarka í Erítreumanninn Andemariam Bayene. Ríkið hefur áfrýjað dómnum.Eftir að dómurinn féll sagði Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, að það yrði að koma í ljós hvort Tómas sneri aftur til starfa. Hann sagði þá að það væri ótímabært að svara því hvort spítalinn bæri traust til hans.
Tómas snúinn aftur til starfa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd