Hreyfingin gegn réttindum hinsegin fólks og kvenna er ekki lengur jaðarsett eða bundin við ákveðin svæði í Evrópu. Áhrifanna gætir í öllum ríkjum Evrópu, þar á meðal á Íslandi. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu samtakanna Forbidden Colours.Skýrslan nær til 47 Evrópuríkja: allra aðildarríkja Evrópuráðsins auk Rússlands, og fer yfir þróun hinnar svokölluðu anti-gender-hreyfingar, eða hreyfingarinnar gegn kynjahugmyndafræði. Til hreyfingarinnar teljast þeir sem beita sér gegn réttindum hinsegin fólks og frjósemisréttindum kvenna.Niðurstöður skýrslunnar benda til þess að hreyfingin hafi sótt í sig veðrið síðustu 25 ár. Hreyfingin teljist ekki lengur til jaðarhreyfinga eða hreyfinga sem bundnar eru við ákveðin svæði Evrópu. Í lok síðasta árs var ekkert hinna 47 ríkja ósnortið af hreyfingunni g