Haustið hefur verið nokkuð gott fyrir þá garðyrkjubændur sem stunda útirækt þótt það hafi reyndar verið töluvert blautt og erfitt að komast um garðana. Víða er búið að taka upp hvítkál, blómkál, grænkál, rófur og gulrætur.Einn af þeim bændum sem stunda ræktun á gulrótum er Óskar Hrafn Eyþórsson á bænum Grafarbakka rétt við Flúðir.„Ég er með gulræktur á rétt tæpum þremur hekturum en ég hef verið að taka upp einhver 40 til 50 tonn, sem er bara mjög fínt,“ segir Óskar.Óskar segir gulræturnar seljast vel enda fátt sem jafnast á við góða gulrót.En hvað er það við íslensku gulræturnar sem fólk er svona ánægt með?„Það er bara bragðið enda er beðið eftir uppskerunni af mikilli eftirvæntingu á hverju hausti.”Og þér sýnist að uppskeran ætli að vera góð í haust?„Já, ég held að ég geti bara lofað góðu