Vel á annað hundrað ungmenna fylgdi eftir bandaríska áhrifavaldinum og samfélagsmiðlastjörnunni Kai Cenat sem staddur er hér á landi. Cenat fór í víkingaleiki í Hljómskálagarðinum og bragðaði á sviðasultu og slátri á Hjartatorgi í miðbæ Reykjavíkur. „EINHVER STAL HÚFUNNI MINNI“ Cenat var á flakki um miðborg Reykjavíkur í kringum hádegi og hefur heimsóknin kvisast út meðal íslenskra fylgjenda.Vel á annað hundrað ungmenna eltu og hópuðust í kringum hann, mikið til unglingsdrengir, sem ýmist gripu í hann eða tóku af honum mynd eða myndband.Hamagangurinn virðist hafa komið Cenat nokkuð á óvart, og segir hann í beinu streymi að einhver hafi gerst svo bíræfinn að stela húfunni hans.Cenat kom við í Hljómskálagarðinum þar sem hann var klæddur í víkingabúning og fór í víkingaleiki, meðal annars