Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverand frambjóðandi til formanns VR, sakar Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, um að hafa hrekið hana úr starfi eftir að þau tókust á um formannsembætti VR árið 2023. Hún gleymi aldrei svip Ragnars þegar hún tilkynnti honum um framboðið en hatur hafi skinið úr andliti hans. Ragnar og stuðningsmenn hans hafi gert allt til að sverta mannorð hennar og var það ekki hennar ákvörðun að segja skilið við VR eftir sigur Ragnars.