Vegir lokaðir vegna skriðufalla á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum

Vegir hafa lokast á norðanverðum Vestfjörðum og á Ströndum vegna skriðufalla og grjóthruns síðustu daga. Spáð er áframhaldandi úrkomu fram yfir helgi. MESTA ÚRKOMAN MÆLDIST Á SUÐUREYRI Skriðuviðvaranir eru í gildi á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum vegna mikillar úrkomu sem hófst á fimmtudag. Mesta úrkoman mældist á Suðureyri, yfir 120 millimetrar.Nokkrar skriður féllu í gær, meðal annars á Ströndum, og nokkuð hefur verið um grjóthrun sem hefur fallið á vegi.Vegurinn í Árneshreppi lokaðist í gær eftir að skriða féll í Kaldabaksvík.„Það hefur ekki dregið úr úrkomu en hiti hefur lækkað aðeins sem er jákvætt fyrir skriðuhættu, það dregur þá aðeins úr henni,“ segir Unnur Blær Bartsch, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.„En úrkoman heldur samt áfram og á morgun mun hiti hækka á
Vegir lokaðir vegna skriðufalla á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd