Bjartsýnn á að kjarasamningar haldi ef stjórnvöld taka þátt

Formaður Starfsgreinasambandsins segist bjartsýnn á að kjarasamningar haldi eftir að samþykkt var á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í gær að hækka ekki gjaldskrár umfram 2,5% á næsta ári. Hann telur einstaka verðfrystingar fyrirtækja ekki hafa tilætluð áhrif.Nokkur fyrirtæki hafa tilkynnt frystingu á verðlagi eftir að VR, Landssamband íslenskra verzlunarmanna og fagfélögin hvöttu til frystinga.„Einstakar aðgerðir varðandi frystingu eru ekki nægilegar að mínum dómi, alls ekki,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sem nefnir að slíkt hafi þegar verið reynt árið 2024 fyrir undirritun kjarasamninga án árangurs. Þá hafi Breiðfylking Starfsgreinasambandsins, Eflingar, Byggiðnar og Samiðnar hvatt til verðfrystinga.„Það voru fyrirtæki eins og Byko, Ikea og fle
Bjartsýnn á að kjarasamningar haldi ef stjórnvöld taka þátt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd