Írska knattspyrnusambandið hefur gefið út nýjan tíma fyrir æfingu og blaðamannafund fyrir landsleik gegn Ísrael. Áður hafði æfingunni og blaðamannafundinum verið frestað. Heimir Hallgrímsson mun ræða við fjölmiðla klukkan 13:30 á íslenskum tíma.Æfingin verður klukkan 13:45 á Nagyerdei-vellinum í Ungverjalandi, þar sem Ísrael leikur heimaleiki sína og hefur gert frá 2023.Talið er að nokkrir leikmenn írska liðsins hafi sagt að þeir vilji ekki leika gegn Ísrael. Þar á meðal er varamarkvörðurinn Gavin Bazunu. Talið er að annaðhvort fjórir eða fimm leikmenn í hópnum vilji ekki keppa.Frestunin kom til vegna fundarhalda knattspyrnusambandsins og leikmanna. Blaðamannafundi var frestað á síðustu stundu. Liðsrúta írska liðsins er enn á hótelinu.Við færum frekari fregnir hér strax og þær berast.Leiku