Par var dæmt í átta ára fangelsi fyrir að hafa staðið að innflutningi á rúmum átján kílóum af kókaíni til landsins í maí síðastliðnum. Þau hafi flutt fíkniefnin til landsins frá Frankfurt í Þýskalandi í tveimur farangurstöskum sínum. Annar sagðist hafa keypt töskurnar notaðar og að þau hafi ekkert vitað um efnin í þeim.