Þúsundir mótmæltu stjórnvöldum vegna Ceuta

Þúsundir komu saman í Madrid á Spáni í dag til þess að mótmæla því hvernig ríkisstjórn landsins tók á áhlaupi flóttamanna á hólmlenduna Ceuta á norðurodda Marokkó í lok júlí. Um 70 þúsund manns streymdu inn í bæinn, sem tilheyrir Spáni, og þótt flestir hafi snúið aftur til baka halda enn þúsundir hælisleitenda til í bænum, íbúum þar til mikils ama. Mótmælendur í Madrid kröfðust þess í morgun að blásið yrði til kosninga og segja að Ceuta sé ekki til sölu. Standa þurfi vörð um bæjarbúa þar. Þingkosningar verða næst haldnar á Spáni í ágúst næstkomandi. Þúsundir flóttamanna halda enn til í Ceuta, bæjarbúum til mikils ama.EPA / REDUAN
Þúsundir mótmæltu stjórnvöldum vegna Ceuta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd